Færsluflokkur: Dægurmál

Hanna Katrín játar ósigur, segist ríkisstofnun

Atvinnuráðherra, Hanna Katrín, játar ósigur í veiðigjaldamálinu þar sem til stendur að tvöfalda skattinn sem lagður er á fiskveiðar. Játningin er í blaðagrein sem ráðherra skrifaði. Hanna Katrín klæðir játninguna í búning hótunar. Lokaorð ráðherra í Vísisgrein:

Það má hafa skilning á því að hagsmunaöfl, sem hafa vanist því að skrifa leikreglurnar að miklu leyti sjálf, fagni ekki þegar ný ríkisstjórn reynist þeim ekki leiðitöm. Það er hins vegar grafalvarlegt mál þegar viðbragð þessara sömu hagsmunaafla er að ráðast að stofnunum ríkisins að því er virðist í þeim tilgangi að þvinga fram aðra niðurstöðu. Við því verður brugðist af fullum þunga. (feitletr. pv)

Í fyrri feitletruninni stofnanagerir ráðherra sjálfan sig, Hanna Katrín er orðin að ríkisstofnun. Í seinni feitletruninni hótar þessi nýja ríkisstofnun, sem má kalla HKF-stofnunina, að beita sér af ,,fullum þunga" gegn þeim sem voga sér að andmæla tvöföldun skattbyrði á eina atvinnugrein. Í stað þess að taka umræðuna af drengskap leggur ráðherra á flótta, transar sig yfir í stofnun. 

Hanna Katrín er eldri en tvævetra og sennilega óheimsk. Hún veit að ráðherra er eitt og ríkisstofnun annað. Ráðherra starfar tímabundið í umboði meirihluta þingsins og er það sem í daglegu tali kallast stjórnmálamaður. Ríkisstofnun er varanleg og starfar samkvæmt lögum.

Í Vísisgreininni, fram að lokaorðunum, skrifar Hanna Katrín eins og stjórnmálamaður, talar um að þjóðin vilji þetta og hitt, að tvöföldun skattbyrðar sé leiðrétting og svo framvegis. Ráðherra virðist meðvitaður að hann sé réttur og sléttur pólitíkus á umræðuvakt. Í lokaorðunum er komið allt annað hljóð í strokkinn, þar er gagnrýni á ráðherra orðin að árás á stofnanir ríkisins. Hanna Katrín getur ekki varið málflutning sinn sem stjórnmálamaður og fer í trans; hættir að vera stjórnmálamaður af holdi og blóði en gerist ríkisstofnun. Með yfirlýsingunni einni saman, líkt og karl verði kvenmaður með setningunni: ég er kona. 

Lausatök Hönnu Katrínar á veruleikanum á sínar skýringar. Á hinsegin-hátíð í Washington nýverið tilkynnti hún að þörf væri á lagasetningu til að breyta skoðunum fólks. Skráð skal í lög að kynin séu fleiri en tvö og að hægt sé að fæðast í röngum líkama. Þeir sem eru annarrar skoðunar, að kynin séu aðeins tvö og ómögulegt sé að fæðast í röngum líkama, verða lögbrjótar fái sérviska ráðherra framgang. Geta má nærri hvort frjálshuga menn með dómgreindina óbrenglaða fái ekki að kenna á HKF-valdinu ,,af fullum þunga."

Frekjulegt valdboð afhjúpar veruleikafirringu meints valdhafa. Í veiðigjaldaumræðunni er ráðherra strand. Viðtengd frétt staðfestir skort á grunnfærni í reikningi af hálfu þeirra sem um véla. Í stað þess að afturkalla frumvarpið, þegar alvarlegir gallar komu í ljós, og vinna betur heimavinnuna, er málið transað. Ráðherra verður að ríkisstofnun sem hafin er yfir gagnrýni þótt ekki kunni hann að reikna. Staðreyndir, hvort heldur reiknanlegar eða líffræðilegar, verða aukaatriði, ímyndun aðalatriði. Heimurinn virkar ekki þannig. Tölur í bókhaldi segja hvort fyrirtæki sé gjaldfært eða ekki. Ímyndanir transráðherra forða hvorki rekstri né stjórnmálum frá gjaldþroti.

Í takt við annað, sem kemur frá atvinnuráðherranum er varð að stofnun, hlýtur að liggja fyrir kyn nýja ríkisapparatsins, HKF-stofnunarinnar. Er stofnunin kvár, stálp eða kannski bara dár?

 

 


mbl.is Viðurkenna ólíkar forsendur en hafna ásökunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísrael, Íran og heimsfriðurinn

Tvö þúsund kílómetrar eru á milli Ísrael og Íran. Á milli landanna eru Jórdanía og Írak. Af því leiðir er hernaður á milli Ísrael og Íran lofthernaður, háður með flugvélum og eldflaugum en að litlu leyti drónum. Enginn landhernaður verður á milli landanna. 

Í upphafi átakanna var talið að Íran ætti um tvö þúsund eldflaugar með drægni til Ísrael. Þeir eiga eftir um 1700 en líða fyrir skort á sérhæfum vélbúnaði sem nauðsynlegur er til að skjóta á loft eldflaugunum. Loftvarnir í Ísrael telja sig ná 95 prósent árangri. Fimm prósent af 300 flaugum eru fimmtán. Mannfall er í Ísrael af völdum eldflauganna sem komast framhjá loftvörnum. Svartsýnir spáðu margfalt meiri skaða á mannslífum og mannvirkjum en hingað til hefur raungerst. 

Í fyrsta áfanga stríðsins tókst Ísraelum að eyðileggja lofvarnarkerfi Íran. Ísrael ræður lofthelgi Íran og getur sent bylgju eftir bylgju flugvéla á valin skotmörk. Munurinn er sá að Ísraelar leita uppi hernaðarleg skotmörk á meðan klerkarnir í Íran láta sig engu skipta hvar flaugar þeirra lenda, eins lengi og þær springa á ísraelsku landi.

Yfirlýst markmið Ísraela er að koma í veg fyrir að Íran eignist kjarnorkuvopn. Hliðarmarkmið er að búa í haginn að klerkastjórninni verði steypt af stóli - af almenningi. Yfirlýst markmið Íran er að gjöreyða Ísrael. Klerkastjórnin í Tehran segir Ísrael ,,litla Satan" og Bandaríkin ,,stóra Satan." Trúarlegt alræði íslam yfir heimsbyggðinni er lokamarkmiðið. 

Eins og sakir standa er ólíklegt að árás Ísraela á Íran leiði til stigmögnunar. Íranar eru persar, ekki arabar, og aðhyllast shíta-útgáfu íslam á meðan arabar eru flestir súnní-múslímar. Kalt stríð er á milli Sádi-Arabíu og Íran, tveggja forysturíkja í heimshlutanum. Arabaheimurinn hefur ekki risið upp á afturlappirnar til stuðnings Íran. Rússar og Kínverjar fordæma árás Ísraels en láta það nægja. Eftirspurn eftir trúarlegri og veraldlegri leiðsögn Íran er takmörkuð.

Riði klerkastjórnin í Tehran til falls eftir árásir Ísraela er aldrei að vita hvaða stefnu miðausturlönd taka. Íran er herskáasti óvinur Ísraels og meginríki í heimshlutanum, telur 90 milljónir íbúa. Upplausn og óreiða í jafn stóru ríki er vís með að hafa áhrif út fyrir landamærin. Enn sem komið er ræður Íran ekki yfir kjarnorkuvopnum. Það eru góðu fréttirnar.

 

 

 

 


mbl.is Netanjahú: Munu gjalda dýru verði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Miðflokkurinn er eini hægriflokkurinn

Eini hægriflokkurinn á alþingi er Miðflokkurinn. Andstaðan við bókun 35, að ESB-lög gangi framar íslenskum lögum, er hrein og tær fullveldispólitík. Flokkar sem ekki eru einarðir andstæðingar bókunar 35 eru ýmist á miðjunni eða til vinstri. Hælismálin er annað höfuðmál sem aðgreinir hægri frá vinstri. Þar er Miðflokkurinn með sérstöðu, líkt og í Evrópumálum.

Hvað með Sjálfstæðisflokkinn? Er hann ekki hægriflokkur? Nei, gamli móðurflokkur íslenskra stjórnmála er til vinstri við miðju í meginmálum. Flokkurinn rígheldur í EES-samninginn með tilheyrandi orkupökkum. Flokkurinn er værukær, svo notað sé hófstillt orðalag, í hælismálum. Stöku þingmenn, Diljá Mist til dæmis, taka hægrisprett og eru tilbúnir að taka slaginn en þorri þingliðsins er eins og rótlaust þang, reikult og rekst um víðan sjá. Líkt og skáldið orti: Bylgjan, sem bar það uppi/var blóðug um sólarlag.

Sólarlag Sjálfstæðisflokksins er í beinni útsendingu. Það verður blóðugra en síðustu kosningar. Þá varð flokknum til happs að botna á réttum tíma, nógu nærri þingkosningum til að hægt væri að hringja út skilaboðin ,,viltu að flokkurinn sitji uppi með tólf prósent fylgi." Á síðustu metrum kosningabaráttunnar tókst með herkjum að hífa fylgið upp í tuttugu prósent.

Gamlir flokksjálkar horfa til gullaldarinnar þegar XD var með þriðjungsfylgi í áskrift hjá þjóðinni. Hvað breyttist? Stutta svarið er að þjóðfélagið breyttist en Sjálfstæðisflokkurinn lifir í veröld sem var. Flokkurinn fór þjóðkirkjuleiðina, flaut með óskilgreindum meginstraumi án kjölfestu og stefnu. Hávaðafólk í samvinnu við fjölmiðla bjó til ímynd um meginstraum. Við sjáum hvert ímyndaður meginstraumur leiddi þjóðkirkjuna. Biskupinn á betur heima í druslugöngunni en við altarið. Sjálfstæðisflokkurinn er á sömu leið.

Sigmundur Davíð formaður Miðflokksins hélt opinn félagsfund á þriðjudag. Húsfyllir var og hafði formaðurinn á orði að mörg ný andlit væru á fundinum. Hann kom beint af kvöldfundi þingsins, talaði í einn og hálfan tíma við fundarmenn og svaraði spurningum, en hélt síðan aftur í þinghúsið að andmæla bókun 35. Fundarmaður spurði Sigmund Davíð um fjölmenn mótmæli á Austurvelli í lok maí, þar sem hælisstefnu stjórnvalda var andmælt. Hann kvaðst geta skrifað upp á hvern einasta lið mótmælanna.

Engum blöðum er að fletta að Sigmundur Davíð og Miðflokkurinn eru betur tengdir við undirstrauma samfélagsins og betur settir að sækja stuðning almennings en þjóðkirkjuflokkurinn í ímynduðum meginstraumi.

 


mbl.is Rætt um bókun 35 inn í sumarnóttina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dómsmál: nýtur BDSM verndar sem kynhneigð?

Í gær var réttað yfir tilfallandi í héraðsdómi Reykjavíkur. Lögreglustjórinn í Reykjavík ákærði tilfallandi fyrir ,,hatursorðræðu." Tekist var á um hvort BDSM-kynlíf njóti lagaverndar á þeim forsendum að vera kynhneigð og hvort þeir sem það stunda séu jaðarsettur minnihlutahópur er skuli hafa aðgang að börnum í leik- og grunnskólum.

Forsaga málsins er tilfallandi blogg í september fyrir tveim árum. Inngangurinn að blogginu er svohljóðandi:

Í grunnskólum Reykjavíkur er BDSM-kynlífi haldið að börnum. BDSM stendur fyrir drottnun, undirgefni, kvalarlosta og píningarnautn. Samtökin 78 reka BDSM-deild. En það eru einmitt Samtökin 78 sem útvega kennsluefni í kyn- og kynlífsfræðslu grunnskóla Reykjavíkur og sjá um þjálfun og kennslu.

Samtökin 78 kærðu bloggið til lögreglu. Í framhaldi gefur lögreglan út ákæru á hendur tilfallandi fyrir brot á grein 233 a. hegningarlaga:

Hver sem opinberlega hæðist að, rógber, smánar eða ógnar manni eða hópi manna með ummælum eða annars konar tjáningu, svo sem með myndum eða táknum, vegna þjóðernisuppruna eða þjóðlegs uppruna, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða, fötlunar, kyneinkenna, kynhneigðar eða kynvitundar, eða breiðir slíkt út, skal sæta sektum eða fangelsi allt að 2 árum. (feitletr. pv)

Saksóknarinn í gær, rúmlega þrítug kona, staðhæfði að tilfallandi hefði hæðst að, rógborið og smánað viðkvæman minnihlutahóp og ætti að sæta refsingu fyrir, sekt eða fangelsisvist. Nánar tiltekið í ákæruskjali eru eftirfarandi efnisgreinar sagðar hæðni, rógur og smánun:

1. Samtökin 78 eru regnhlífarsamtök og lífsskoðunarfélag fullorðinna sem áhugasamir eru um klám, kynlíf, kynjaveröld og tælingu barna.

2. Kennsluefnið er tæling dulbúin sem upplýsingar. Meðfædd blygðunarsemi barna er skipulega brotin niður. Börn eru gerð móttækileg fyrir þátttöku í kynlífi og það jafnvel ofbeldiskynlífi - BDSM. Börn eru gerð efins um eigin sjálfsmynd og talin trú um að þau séu mögulega fædd í röngu kyni. Ringluð börn og óörugg eru síður í stakk búin að veita viðnám fullorðnum með eitthvað misjafnt í huga. Út á það gengur tælingin.

Tilfallandi gaf skýrslu fyrir dómi í gær og svaraði spurningum saksóknara, dómara og verjanda. Enginn fjölmiðill sýndi málinu þann áhuga að mæta í réttarsal. Atlaga ríkisvaldsins að tjáningarfrelsinu þykir fjölmiðlum ekki fréttnæm. Tilfallandi svaraði spurningum réttarins eftir bestu samvisku, sagðist standa við orð sín. Bloggið var skrifað til að bera hönd fyrir höfuð barna í leik- og grunnskólum sem eiga ekki að þurfa að sitja undir boðskap Samtakanna 78. Tilfallandi gerir engar athugasemdir við að fullorðið fólk hafi félagsskap um sín áhugamál. Sum áhugamál fullorðinna eiga aftur ekkert erindi til barna.

Saksóknari tók annan pól í hæðina. Hann sagði orðrétt að ,,miðaldra karlar sem brjálast við lyklaborðið" verði að hljóta makleg málagjöld, fjárútgjöld og fangelsisvist. Eðlilega gerði verjandi athugasemd við orðfæri saksóknara.

Tilfallandi gengst við að vera miðaldra karl en telur ekkert ,,brjálæðislegt" við þá skoðun að kynin séu aðeins tvö og ekki sé hægt að fæðast í röngum líkama. Saksóknari lögreglustjórans í Reykjavík er annarrar meiningar, sem ekki er tiltökumál. Verri er aftur sú krafa saksóknara að tilfallandi sæti refsingu fyrir að andmæla boðskap Samtakanna 78 í leik- og grunnskólum. Maður bindur vonir við að dómari meti málsatvik tjáningarfrelsinu í hag. Illa er komið fyrir frjálsri orðræðu ef lögreglan ritstýrir með ákæruvaldi og dómstólar úrskurði atferlið lögmætt.

Lesendur hafa með framlögum stutt tilfallandi að halda fram sjónarmiðum og skoðunum sem ekki eiga upp á pallborðið hjá ráðandi öflum. Hjartans þakkir. Það er hvetjandi að vita af fólki sem ekki er sama um hvert horfir með málfrelsið í landinu.

 


Katrín Thunberg og loftslagskvíðinn

Barnasendiherra Sameinuðu þjóðanna í loftslagsvá, Gréta Thunberg, gekk fyrir Hamas-björg og þáði góðgerðir frá ísraelskum hermönnum með bros á vör. Loftslagsvörumerkið Thunberg er ónýtt. Sænska barnaundrið víkur fyrir fyrrum formanni Vinstri grænna, Katrínu Jakobs.

Katrín er formaður nýrrar alþjóðanefndar um yfirvofandi loftslagshamfarir. Á RÚV fer hún með sömu rulluna og Gréta áður: við megum engan tíma missa. Málflutningur Katrínar er rökvilla, niðurstaðan á að sanna forsenduna. Á RÚV er haft eftir Kötu fyrrum spöku:

loftslagskvíði og aðrar ógnanir séu staðreynd nútímans segir Katrín.

Ef fólk er haldið loftslagskvíða, staðhæfir Katrín, hlýtur að vera loftslagsvá. Kvíði er hugarástand sem sannar ekki eitt eða neitt nema að einhver óttist eitthvað. Hamfaratrú orsakar kvíða. Umbjóðendur Katrínar, alþjóðaelítan, ala á kvíðanum, það er hluti af óttastjórnun. Gerið eins og við segjum, annars er heimsendir í nánd.

Fyrrum forsætisráðherra víkur almennum orðum að vísindum og gögnum, segir þau undirbyggja heimsendaspámennskuna. Nei, alls ekki. Nákvæmar gervihnattamælingar á loftslagshjúp jarðar sýna að jörðin hlýnar um 0,15 gráður á áratug síðustu 45 árin. Á einni öld hlýnar plánetan um eina og hálfa gráðu á selsíus. Engin hamfarahlýnun heldur náttúruleg þróun, í takt við það sem vitað er um fyrri loftslagsbreytingar.

Það er engin loftslagsvá, segir í yfirlýsingu 1900, já, eitt þúsund og níuhundruð, loftslagsvísindamanna og sérfræðinga, sem biðja um að stjórnmálamenn líti til staðreynda en ekki pólitískra fáránleikafræða.

Þegar Eiríkur rauði nam Grænland fyrir rúmum þúsund árum stundaði hann kúabúskap að norrænum hætti. Þá stóð yfir miðaldahlýskeiðið. Um 1300 tók við litla ísöld og varði til um 1900. Byggð norrænna manna eyddist á Grænlandi og stóð tæpt á Ísland þegar saman fór kuldi og eldvirkni kennd við móðuharðindin. Veðurfar breytist frá einu tímabili til annars. Það er ekki til neitt sem heitir kjörhitastig jarðar. 

Gréta, Katrín og hamfarasinnar handvelja staði og tímabil til að kynda undir loftslagskvíða. Auðvelt er að beita sömu aðferð til að sýna fram á hið gagnstæða, að heimurinn sé að kólna. Þannig upplýsir sá ágæti veðurfræðingur Trausti Jónsson að fyrstu tíu Reykjavíkurdagarnir í júní í ár eru þeir köldustu í 118 ár. Er kuldaskeið yfirvofandi? Koma jólasveinar til byggða í ágúst?


Spilafíkn og vinstripólitík

Fréttir herma að Píratar, Sósíalistaflokkurinn og Vinstri grænir hyggist leiða saman hesta sína og sækja fram sameiginlega í von um stóra vinninginn, völdin í stjórnarráðinu. Eldri en tvævetur muna að fyrir lýðveldisstofnun og allar götur síðan reyna vinstrimenn að setja saman sigurflokkinn - stjórnmálaflokk sem yrði ,,hinn turninn" í íslenskum stjórnmálum og keppti við Sjálfstæðisflokkinn.

Nú er Sjálfstæðisflokkurinn í lægð, með um 20 prósent fylgi, og Samfylkingin er á pari. Sögulegt tækifæri vinstrimanna er að efla Samfylkinguna til að verða ,,hinn turninn." Tuttugu prósent flokkur er að vísu enginn turn, fremur bæjarhóll. En það mætti byggja ofan á mishæðina i pólitíska landslaginu. Auðvitað munu vinstrimenn ekki fara þá leið, heldur hina sem mörkuð var með klofningnum 1930 er kommúnistar yfirgáfu Alþýðuflokkinn og stofnuðu nýjan flokk.

Félagssálfræði vinstrimanna verður ekki skilin á pólitískum forsendum. Geðlæknir kann betur skil á málefninu en stjórnmálafræðingur. Óttar Guðmundsson geðlæknir ræðir í viðtengdri frétt spilafíkn. Ef við skiptum út orðinu spilafíkill fyrir vinstrifíkill verður útkoman eftirfarandi:

Það er mjög al­gengt, að fólk sé með marg­ar fíkn­ir,“ seg­ir Óttar sem lýs­ir vinstrifíkn sem „erfiðri“ fíkn. „Vinstrifíkl­arn­ir eru með svo mikl­ar rang­hug­mynd­ir um sjálf­an sig, um vinn­ings­lík­urn­ar og því um líkt. Þeir lifa oft í óraun­veru­leg­um heimi. Al­veg sama hvað þeir tapa miklu og hve stór áföll­in eru í spila­mennsk­unni þá trúa þeir á að þeir muni vinna,“ seg­ir hann og bæt­ir við að mjög erfitt sé að meðhöndla ein­stak­linga sem hafi unnið stóra vinn­inga. „Það er mjög erfitt að meðhöndla þá því þeir vita í hjarta sínu að þeir vinna þenn­an gullpott aft­ur. Vinstrifíkl­arn­ir eru sér­stak­lega slæm­ir hvað þetta varðar, þeir fara inn í ákveðinn heim og verða sann­færðir um að þeir muni vinna. 

Vinstrifíklarnir unnu gullpott í kosningunum eftir hrun, þegar þjóðin var í taugaáfalli. Vinstri grænir fengu um 20 prósent fylgi og Samfylking tíu prósentum betur. Við síðustu kosningar fékk Samfylking silfurpott, 20 prósent fylgi. Vinstrifíklarnir sem einu sinni eða tvisvar vinna stórt yfir ævina eru eins og spilafíklarnir sem geðlæknirinn gerir að umtalsefni; haldnir ranghugmyndum um sjálfa sig og svara illa meðferðarúrræðum.

Fíklar, á spil og pólitík, eiga það sameiginlegt að skilja eftir sig sviðna jörð fái þeir tækifæri til. Jóhönnustjórnin bjó til óreiðu kjörtímabilið 2009-2013. Tólf árum síðar skapar Kristrúnarstjórnin farveg fyrir upplausn og eyðileggingu verðmæta, bæði efnislegra og menningarlegra. Fíklum er ekki sjálfrátt, þeir svara ekki rökum enda lifa þeir í heimi ímyndunar.

 


mbl.is „Það fer i þetta mikill peningur, mikill tími og mikil hugsun“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hildur, tjaldhælar og vók-barsmíðar

Best er að lemja þá sem andmæla stefnu stjórnvalda í hælisleitendamálum, skrifar Hildur Lillendahl. Nokkur framför hjá Hildi sem á fyrra skeiði sínu sem vók-álitsgjafi vinstrimanna mælti með að tjaldhælar væru notaðir á konu sem henni var í nöp við.

Ásamt barsmíðum mælir Hildur með hæðni og sniðgöngu gagnvart fólki sem andmælir stefnu stjórnvalda í hælismálum.

Ummæli Hildar, um að berja skuli fólk með rangar skoðanir, staðfesta umræðu síðustu daga um öngstræti vók-orðræðunnar. Vinstrimenn eru ábyrgir fyrir vókinu. 

Vók er ógnarorðræða sem gengur út á að hræða almenning frá því að segja sína skoðun. Afgerandi meirihluti þjóðarinnar er á móti stefnu ríkisstjórnar Kristrúnar í hælisleitendamálum. Fjölsóttur mótmælafundur í lok maí á Austurvelli sýndi að fólk er tilbúið að leggja á sig það ómak að gera sér ferð niður í miðbæ Reykjavíkur á sólbjörtum degi sem mætti nýta til margs annars skemmtilegra en mótmæla stjórnvöldum. En almenningur er óðum að vakna til vitundar um að hælismálin eru í ólestri og lagði á sig að ferð niður í miðbæinn að tjá hug sinn með íslenska fánann í hönd.

Vinstrimenn eru meira og minna undir hælnum á vók-hugmyndafræðinni og þar er einn hornsteinninn opin landamæri. Hildur og félagar átta sig á samhenginu og hafa sem andsvar heilaga þrenningu vóksins; smánun, sniðgöngu og ofbeldi.

Hatursorðan, sem Hildur stendur fyrir, er ýkt útgáfa af viðbrögðum talsmanna stjórnarmeirihlutans, eins og Ágústa Árnadóttir skrifaði: þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana. Logi Einarsson fjölmiðlaráðherra er á sömu slóðum og Hildur þótt orðfærið sé klætt í öfgalausan lagatexta. Loga er í nöp við ákveðna fjölmiðla. Hvað gerir hann? Jú, breytir lögum til að þeir fái minni ríkisstyrk en hinir sem leggjast á vók-árarnar með vinstrimönnum.

Umræðan síðustu daga meðal vinstrimanna lýsir örvæntingu. Þeir átta sig á að slagurinn um opin landamæri er tapaður. Önnur helg vé vók-vinstrisins, t.d. fabúlan um manngert veður og transfræðin, liggja einnig undir ágjöf. Hótanir vók-liða um að beita ofbeldi þegar áhrifamátt hæðni og sniðgöngu þrýtur hittir vókið sjálft fyrir. Fólk sér hvað vókið stendur fyrir og yfirgefur málstaðinn.

 

 


Kristrún, Keir Starmer og vók-orðræðan

Kristrún Frostadóttir og Keir Starmer eru forsætisráðherrar Íslands og Bretlands í umboði krataflokka, Samfylkingar og Verkamannaflokksins. Bæði eiga erfitt uppdráttar að lóðsa flokka sína frá vók-fræðum yfir í eitthvað sem mætti kallast málefnaleg umræða er tekur tillit til þjóðarhagsmuna.

Starmer reyndi um daginn að vekja máls á að hælisleitendur frá framandi slóðum (les: múslímaríkjum) væru orðnir það margir í Bretlandi að þjóðmenningunni stendur ógn af. Borgaralega útgáfan Telegraph er sammála Starmer, en bendir á í leiðara, að samkvæmt skilgreiningu breskrar opinberrar stofnunar er forsætisráðherra Bretlands sekur um ,,menningarlega þjóðernishyggju og ætti að flokkast sem hægri öfgamaður." 

Fyrir rúmri viku var hér á Íslandi fundur á Austurvelli til að andmæla óheftum straumi hælisleitenda inn í landið. Aðstandendur mótmælanna fengu yfir holskeflu af formælingum. Rauði þráðurinn í reiðilestrinum var að þeir sem andmæltu opnum landamærum væru rasistar.

Ágústa Árnadóttir skrifaði í Vísi ádrepu til valdafólksins sem notuðu ógnarorðræðu í þeim tilgangi að fæla afgerandi meirihluta þjóðarinnar frá því að segja sína meiningu.

Jóhanna Jakobsdóttir útskýrir hvernig fáir en frekir vókistar stjórna umræðunni:

Afleiðingarnar eru þögul en alltumlykjandi stjórnlyndisleg valdboðun sem teygir anga sína um allt samfélagið, inn í stofnanir og fjölmiðla sem hefur áhrif á hvernig fólk talar og tjáir sig um raunveruleikann og tilfinningin er sú að einungis forskrifaðar skoðanir séu leyfðar. Þetta gerist ekki með grasrót eins og einhverjir vilja halda fram, heldur ofan frá fyrir tilstilli háværs minnihluta og það gjarnan með miklu offorsi. Á tímabili var það svo að ef þú marseraðir ekki alveg í takt, máttirðu í besta falli eiga yfir höfði þér að vera álitinn forpokaður, jafnvel fáfróður afturhaldsseggur en þegar verst lét lá ógnin af félagslegri bannfæringu í loftinu.

Hægfara kratar eins og Kristrún og Starmer standa frammi fyrir tveim kostum. Í fyrsta lagi að segja sig frá vókinu með afgerandi hætti. Í öðru lagi að ganga í vók-takti fram af bjargbrúninni. Vókið er komið á síðasta söludag. Eins og Jóhanna segir í tilvitnaðri grein:

Það sem helst situr eftir þegar orðagjálfrið er flysjað utan af hugmyndafræðinni er prinsippleysi, óteljandi þversagnir, hræsni, yfirborðsmennska, verkstol, raunveruleikafirring, barnaskapur og þegar verst lætur; mannfyrirlitning og siðleysi.

Spurningin er hvað tekur við eftir vókið. Ef hófstilltir vinstrimenn sjá að sér í tíma gæti orðið bandalag milli þeirra og hófsemdarmanna á hægri kantinum. Það bandalag myndi halda pólitísku miðjunni í jafnvægi. Hitt er líklegra, eins og sakir standa, að sveiflan verði kröftug til hægri og miðjan tapast. Öfgar ala af sér öfgar.


Sjálfstæðisflokkur tekur ekki eitrað peð Kristrúnar

Kristrún forsætis og stjórnarmeirihlutinn lögðu gildru fyrir Sjálfstæðisflokkinn með því að setja bók 35 á dagskrá þingsins en taka öll önnur mál af dagskrá. Á meðan Sjálfstæðisflokkurinn var í stjórn vildi a.m.k. hluti þingflokksins samþykkja bókun 35. Við núverandi kringumstæður yrði það pólitískt sjálfsmorð fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Ástæðan er tvöfeldni EES-samstarfsins í íslenskum stjórnmálum.

Bókun 35 snýst um að ESB-lög, sem koma inn í EES-samninginn, skáki út íslenskum lögum. Lagalega álitamálið er hvort bókun 35 samrýmist stjórnarskránni eða ekki. Sterk rök, sjá grein Hjartar J. Guðmundssonar, eru fyrir þeirri túlkun að án stjórnarskrárbreytinga sé ekki hægt að samþykkja bókun 35. Heimssýn tekur einnig málið fyrir í pistli.

Pólitíska hliðin snýr að EES-samningunum í heild. Á sínum tíma var EES-samningurinn seldur þjóðinni á þeim forsendum að við þyrftum ekki að ganga í Evrópusambandið, EES væri nóg fyrir okkar hagsmuni. Andstæðingar ESB-aðildar, sumir hverjir, styðja EES-samninginn á þessum forsendum. Aðrir, tilfallandi þar á meðal, vilja EES-samstarfið feigt og gera í staðinn tvíhliða samning við Evrópusambandið.

Eins og nærri má geta tala ESB-sinnar um EES-samninginn á öðrum nótum en andstæðingar aðildar. Í máli ESB-sinna kemur oft fram að EES sé aukaaðild að ESB - við ættum að stíga skrefið til fulls og gerast fullgildir aðilar að Evrópusambandinu.

Tvöfeldni EES-samningsins í íslenskum stjórnmálum felur í sér að þegar starfandi er ríkisstjórnarmeirihluti sem stefnir ekki á ESB-aðild er umræðan um EES-samstarfið hófstillt. En þegar stjórnarmeirihlutinn, Kristrún og félagar, stefnir á ESB-aðild verður umræðan sjálfkrafa hatrammari, enda meira í húfi. Samþykkt bókunar 35 undir slíkum kringumstæðum er að búa í haginn fyrir ESB-aðild. Þetta þýðir að þingmenn Sjálfstæðisflokksins geta leyft sér umburðalyndi gagnvart EES-samstarfinu þegar þeir eru í stjórn en alls ekki í stjórnarandstöðu.

Vilhjálmur Árnason þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins veit hvað klukkan slær þegar Kristrún býður upp á eitraða peðið sem er bókun 35. Taki móðurflokkur íslenskra stjórnmála peðsfórninni er skákin töpuð Valhallarmönnum.

Peðsfórnin er augljós brella sem auðvelt er að sniðganga án áhættu. Útlendingastjórninni verður ekki kápan úr klæðinu að saka sjálfstæðismenn um tvískinnung, hafa eina stefnu í stjórn og aðra í stjórnarandstöðu. Áróður ESB-sinna um að án EES-samstarfsins einangrist Ísland er bitlaust vopn. Viðhorf landsmanna er óðum að snúast í þá átt að við séum of mikið tengd umheiminum en ekki of lítið. Nú falla öll vötn til Dýrafjarðar. Brussel-farvegurinn, sem aldrei var meira en lækjarspræna, er uppþornaður.

Tilboði ESB-sinna, um að skipta um þjóð í landinu, með opnum landamærum og útlenskum lögum, hefur verið hafnað. Það er mergurinn málsins.


mbl.is Ekkert nýtt, óvænt eða sérstakt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útlendingastjórnin

Helstu skjólstæðingar ríkisstjórnar Íslands eru útlendingar. Hælisleitendur fá sérmeðferð í trássi við lög og reglur. Hermangarar í útlöndum fá loforð um aukin íslensk framlög til hermála og gott ef ekki vilyrði um íslenska dáta að deyja í útlöndum. Utanríkisráðherra flýgur landa á milli til að styðja hryðjuverkasamtökin Hamas. Forsætisráðherra hoppar á milli evrópskra höfuðborga að leysa Úkraínustríðið.

Nefndir ráðherrar, utanríkis og forsætis, vinna hörðum höndum í þágu Brussel að gera Ísland að hjáríki Evrópusambandsins og um leið útvörð ESB á norðurslóðum. Rétt eins og ESB gæti veitt einhverjar bjargir í tröllaslag Bandaríkjanna og Rússlands á Norður-Atlantshafi.

Bókun 35 og tvöföldun veiðigjalda falla eins og flís við rass að ESB-stefnu Kristrúnarstjórnarinnar. Evrópsk lög gangi íslenskum framar og útgerðin verði ómagi á opinberri framfærslu - líkt og í ESB.

Þegar ríkisstjórnin lætur svo lítið að gefa íslenskum málefnum gaum blasir við spillt sérgæska, eins og launahækkun Jóns Gnarr og strandveiðar Sigurjóns.

Útlendingastjórnin er bastarður án málefna og baklands. Stjórnarsinnar geta ekki bent á nein meginmál sem gefa hugboð um hvernig ríkisstjórnin sér íslensk málefni þróast næstu misseri og ár. Starfsorka ráðherra er öll í þágu útlenskra hagsmuna en þeim finnst sjálfsagt að hirða laun sín úr vasa íslenskra skattgreiðenda og skammta sér ríkulega.

Tveir ríkisstjórnarflokkanna, Viðreisn og Samfylking, eru hneigðir til sérvisku sem kennd er við hinsegin. Þannig þenkjandi fólk skortir yfirleitt rökhugsun og er ósýnt um samhengi hlutanna.

Þannig segir Viðreisnarráðherrann Hanna Katrín að meint bakslag transfræða sé vegna skorts á lagasetningu. Hanna Katrín ætlar sér að setja lög um skoðanir fólks, það á að trúa að kynin séu legíó og hægt sé að fæðast í röngum líkama. En kynin eru óvart aðeins tvö og meðvitundin fæðist með líkamanum; ómöguleiki er að annað tveggja sé rangt. Það er eins og að segja að rangt barn hafi fæðst.

Og hvar tilkynnti Hanna Katrín að hún ætlaði að breyta íslenskum lögum í þágu alþjóðatrans? Nú, auðvitað, í útlöndum en ekki á alþingi Íslendinga. Og ekki í hvaða útlöndum sem er, heldur sjálfri höfuðborg Trump, Washington. Með í för ráðherra voru fulltrúar Samtakanna 78 á ríkisdagpeningum. Þegar Trump tók við embætti fyrir hálfu ári sögðu Samtökin 78 og Hanna Katrín að Bandaríkin væru ekki ,,öruggt ríki" þar sem Trumpstjórnin viðurkenndi ekki nema tvö kyn. En nú flýgur transþotuliðið vestur sátt við tilvistarvanda sinn í háborg bakslagsins gegn hinseginfræðum. Auðvitað á kostnað íslenska ríkisins.

Málefnaskortur Kristrúnar og félaga kemur fram í dauðyflislegu baklandi. RÚV reynir að peppa upp stemninguna en Glæpaleiti er komið með nýtt einkennistákn, trúðsmerki,  til samræmis við trúverðugleikann. Að RÚV slepptu eru fáir sem nenna að tala máli stjórnarinnar. Jafnvel Doddi netníðingur hefur hægt um sig.

Pólitískt bakland þarf frásögn til að halda á lofti um að stjórnarmeirihlutinn standi fyrir þetta eða hitt. Eina frásögnin í boði er að kvenkynið í stjórnarráðinu mylur undir útlensk málefni en fyrirverður sig fyrir allt íslenskt. Sú frásögn selst ekki á íslensku.

Starfsáætlun þingsins er felld úr gildi, segir í viðtengdri frétt. Vonandi starfar þingið út sumarið. Í haust gætum við fengið kosningar. Útlendingaflokkarnir væru þá afhjúpaðir fyrir það sem þeir eru, - til óþurftar fyrir land og þjóð.

 

 


mbl.is Starfsáætlun Alþingis út um þúfur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband
OSZAR »